KVIKMYNDIR OG SJÓNVARPSEFNI

Kvikmyndaskoðun varar við
Kvikmyndaskoðun varar foreldra og fræðsluaðila barna upp að vissum aldri við skaðsemi sjónvarpsefnis eða kvikmynda. Kvikmyndaskoðun gerir það fyrst og fremst með því að veita aldurstilmæli: Allir aldurshópar, 6 ára, 9 ára, 12 ára, 16 ára, 18 ára. Tákn eru líka notuð til að sýna ástæðuna fyrir tilmælunum: ofbeldi, ótti, kynlíf, mismunun, misnotkun eiturlyfja og/eða áfengis og gróft orðbragð.

Kvikmyndaskoðun veitir ekki ráðgjöf um hverjum efni
Aldurstilmæli Kvikmyndaskoðunar þýða ekki að sjónvarpsefni eða kvikmynd hæfi börnum á vissum aldri og eldri börnum. Kvikmyndaskoðun tekur enga afstöðu til þess. Til dæmis: alvarleg heimildamynd er leyfð öllum aldurshópum, því hún inniheldur ekkert myndefni sem gæti verið skaðlegt börnum. Myndin kann engu að síður ekki að hæfa ungum börnum, t.d. vegna þess að efni hennar er of flókið.

Lokaábyrgðin hvílir hjá foreldrunum
Kvikmyndaskoðun dæmir hvorki innihald né gæði sjónvarpsefnis eða kvikmynda. Óskir og viðmið sem foreldrar setja eru allt of fjölbreytt til að það sé mögulegt. Kvikmyndaskoðun varar einfaldlega við myndefni í sjónvarpsefni og kvikmyndum sem gæti reynst skaðlegt. Foreldrar bera endanlega ábyrð á því hvað börn mega sjá.

Vörur sem merktar eru tilmælum Kvikmyndaskoðunar
Kvikmyndaskoðun metur nær allt hljóð- og myndefni sem í boði er á Íslandi, frá sjónvarpsefni og kvikmyndum í kvikmyndahúsum til kvikmynda á DVD-diskum og myndefni eftir pöntun (VOD). Undanþága er veitt í lögum fyrir fréttir og efni í beinni útsendingu í sjónvarpi þar sem ekki er hægt að flokka það fyrirfram. Hins vegar er þeim sem birta það efni skylt að hafa útsendingartímann í huga. Einnig þarf að vara áhorfendur fyrirfram við óhugnanlegu myndefni.

Útsendingartímar í sjónvarpi
Hvað sjónvarpsefni varðar eru aldurstilmæli Kvikmyndaskoðunar tengd við útsendingartíma. Efni sem leyft er öllum aldurshópum, 6 ára og 9 ára má senda út hvenær sem er.  Sjónvarpsefni sem er með flokkunina 12 ára má aðeins senda út eftir kl. 21.00 virka daga og kl. 22.00 um helgar. 

Hið alþjóðlega PEGI-kerfi er notað fyrir tölvuleiki.Það er flokkunarkerfi sem svipar mjög til þess er Kvikmyndaskoðun notar. Frekari upplýsingar um PEGI má finna hér